Sæll og blessaður, gaman að sjá þig.

Hestanaust

Here on this website are information about me and my breeding that i have been doing on the farm Naustum with my brother Hallur Pálsson. Naust is by the town Grundarfjörður on Snæfellsnes in west Iceland. Only about 2 hours drive from Reykjavík.
We are working with horses that my parents Páll Torfason and Margrét E. Hallsdóttir did start to breed to have riding horses for the family and work on the farm.
We get every year about 3-6 foals from mares that we have trained and know very well. We have been breeding for long time in my family but still it was mostly few foals every year. We offer horses for sale in all ages. If you want to ask us about them just send mail.
Our breeding starts with the mare IS1966237332 - Skjóna frá Naustum. And from her did we get two mares who have the most influence in our breeding. IS1982237332 - Stássa frá Naustum and IS1984237002 - Dögg frá Naustum. From these two come then most of our horses today. Stássa was kind of unlucky that she got hurt very young so it was not possible to show her more than once when she had only 2-3 months training as 4 years old horse.
Our breeding goal is to breed a good fivegaited horse with a good tölt, good temprament and good character.
I am riding instructer and member in Trainers Association FT in Iceland http://tamningamenn.is/.
And now i am in Norway training and teaching at the farm Holla http://hollaislandshestgaard.no/.
Be free to take a look at the pictures here on the page and if you have any questions just contact me at illugip@hotmail.com

12.01.2012 11:21

Helstu fréttir í janúar 2012


Á þessu ári verða eflaust margir spennandi hlutir að gerast í Hrossaræktinnin á Naustum og einnig hjá mér í Noregi.  Hér er ég með mynd af hluta af stóðinu þegar það var rekið heim í reglubundna skoðun og ormalyfsgjöf í desember.  Þarna inn á milli eru eflaust margir ungir hestar sem eiga eftir að gera góða hluti.  Nú af ungum hrossum sem eru komin á tamningaraldur þá eru þau undan hestum eins og Draum frá Ragnheiðarstöðum, Markúsi frá Langholtsparti og Sævari frá Stangarholti. Verður gaman að sjá hvað verður úr þeim.  Og svo í sumar eigum við von á fololdum undan Frakk frá Langholti og Hlyn frá Ragnheiðarstöðum.  

Svo er það að frétta af henni Stássu frá Naustum sem var sýnd í 4. vetra flokki á Landsmóti seinasta sumar að hún er kominn í þjálfun hjá honum Ísólfi Líndal að Lækjamóti.  Að hans sögn lofar hún góðu, það verður gaman að sjá hvernig útkoman verður í vor.

En á Holla Islandshestgaard  í Noregi er ég að temja og þjálfa hross.  Stefnan er sett á nokkur mót í vor og einnig kynbótasýningar.  Er ég með nokkrar efnilegar merar sem eru undan Gyllir frá Keflavík og svo er gaman að segja frá því þar sem maður kemur nú af Snæfellsnesinu að ég var að byrja með merar undan Hrafni frá Brimilsvöllum sem er einnig Snæfellingur.  Þær lofa góðu enn sem komið er.  Svo held ég áfram með þá keppnishesta sem ég var með á keppnisbrautinni í fyrra, þá Aron frá Holla sem er undan Aron frá Strandahöfða og Glað frá Holla sem er undan Kolgrím frá Kjarnholtum.

Einkatímar og námskeiðhald er komið í nokkuð góðar skorður hjá mér hérna og höfum við svo bætt því við að Ísólfur Líndal kemur reglulega og heldur námskeið.  Var það fyrsta hérna í október seinasta og var fullbókað og núna kemur hann í endaðan janúar og er það þegar orðið fullbókað.  Þetta er spennandi samstarf sem við vonum að við getum þróað í góða átt.  


11.10.2011 11:26

Hestar sem ég hef sýnt í Noregi.





Hér eru þrjú hross sem ég hef sýnt í Noregi í Íþróttakeppnum vorið 2011.  Efst er Emma frá Roysland, fyrstu verðlauna meri.  Svo kemur Glaður frá Holla og svo neðstur er Ólafur frá Holla.

11.10.2011 03:54

Helstu fréttir af 2011




Það má segja að 2011 hafi verið gott ár fyrir hrossaræktina á Naustum.  Það fóru 2 hross í fyrstu verðlaun og annað þeirra var sýnt á Landsmóti.  Þetta voru fyrstu tvö afkvæmi fyrstu verðlauna merarinnar Snörp frá Naustum þannig að það má segja að hún stimpli sig vel inn.  Þau hross sem um ræðir eru Gróði frá Naustum og Stássa frá Naustum.  Stássa er í minni eigu en Gróði var seldur fyrir nokkrum árum.   

Einnig erum við stolt af árangri sem er að skila sér á Bergi, þar er nefnilega ein af aðalræktunarmerunum frá Naustum, það er gæðingamóðirin Hrísla frá Naustum og hefur hún skilað öllum sýndum afkvæmum í fyrstu verðlaun og voru þau öll fjögur notuð í ræktunarbússýningu Bergs á Landsmóti í sumar.  Þar voru fremst í flokki Uggi frá Bergi og svo Skriða frá Bergi.

Í sumar fengum við nokkur gullfalleg folöld undan Geisla frá Sælukoti sem hefur unnið það til afreka að vinna A flokk á landsmóti tvisvar sinnum.  Nú verður mjög spennandi að sjá hvernig þau þróast í uppeldinu.

Af sölumálum þá má segja að árið hafi verið gott fyrir okkar litlu ræktun á Naustum.  5 hestar hafa verið seldir til Noregs og eru nýjir eigendur himinlifandi með þá.  Einnig hafa 3 hross verið seld innanlands.

Enn eru til nokkuð hross sem eru á sölulista á Naustum, ásamt því að það er tekið á móti hrossum í hagabeit líka.  

Nú er stefnan sett á að þjálfa hross sem vonandi verða klár til sýninga á næsta ári og verður spennandi að sjá hvernig þau þróast.  En það mun tíminn einn leiða í ljós.
  

17.06.2011 07:14

Hrísla frá Naustum heldur áfram að skila gæðingum.

Nú þegar vorsýningarnar eru búnar á þessu ári 2011 hefur komið í ljós að Hrísla heldur áfram að skila inn snillingum.  Öll afkvæmi hennar hafa farið í fyrstu verðlaun og 3 af þeim eru með farseðil á landsmót.  Það er greynilegt að hún er að stimpla sig inn sem ein af betri kynbótamerum landsins og mun hafa mikil áhrif í framtíðinni. Eins og fyrr segir hér þá er hún undan Neistu frá Naustum og Huga frá Höfða.
Hér læt ég fylgja dómana sem afkvæmi hennar hafa hlotið.

IS2004137340 Uggi frá Bergi
Litur: 2220 Brúnn/mó- stjörnótt
Sköpulag: 8,0 - 8,0 - 8,0 - 9,0 - 8,0 - 7,5 - 8,5 - 8,5 = 8,24
Hæfileikar: 9,0 - 9,0 - 9,5 - 8,0 - 9,0 - 8,5 - 7,0 = 8,79
Aðaleinkunn: 8,57
Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 5,0
Sýnandi: Viðar Ingólfsson

IS2005137340 Sporður frá Bergi
Litur: 6410 Bleikur/fífil- skjótt
Sköpulag: 8,5 - 8,5 - 7,0 - 8,0 - 8,5 - 7,0 - 8,5 - 6,5 = 8,11
Hæfileikar: 8,0 - 8,5 - 8,5 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 7,5 = 8,27
Aðaleinkunn: 8,21
Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 7,0
Sýnandi: Sigurður Sigurðarson

IS2006237336 Skriða frá Bergi
Litur: 2200 Brúnn/mó- einlitt
Sköpulag: 8,0 - 8,5 - 8,0 - 8,5 - 8,0 - 7,0 - 8,0 - 7,5 = 8,13
Hæfileikar: 8,0 - 7,5 - 8,5 - 8,0 - 8,5 - 8,0 - 9,0 = 8,16
Aðaleinkunn: 8,15
Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 7,5
Sýnandi: Daníel Jónsson


IS2007137339 Haki frá Bergi
Litur: 1520 Rauður/milli- stjörnótt
Sköpulag: 8,5 - 8,5 - 8,5 - 9,0 - 7,5 - 7,5 - 7,0 - 9,0 = 8,16
Hæfileikar: 8,0 - 7,5 - 8,5 - 7,5 - 8,0 - 8,0 - 7,0 = 7,92
Aðaleinkunn: 8,02
Hægt tölt: 7,5      Hægt stökk: 7,5
Sýnandi: Viðar Ingólfsson

17.06.2011 05:24

Stássa frá Naustum komin í fyrstu verðlaun.


Á kynbótasýningunni á Gaddstaðarflötum við Hellu var Stássa frá Naustum sýnd í 4. vetra flokki.  Í Stuttu máli má segja að hún hafi staðið undir væntingum og gott betur.  Hún fór í 1, verðlaun sem má telja nokkuð gott fyrir 4. vetra merar í dag þar sem þær eru nú ekki margar sem hafa náð því í ár.  Hún er í minni eigu og er stefnt að því að þetta verði framtíðar ræktunarmerin á Naustum.  Ásamt móður hennar Snörp sem er einnig með fyrstu verðlaun.  Hún fékk farseðil þar með á Landsmót þar sem hún vonandi halda áfram að heilla fólk.  Hér fylgir dómurinn með sem hún hlaut í vor.

IS2007237335 Stássa frá Naustum
Örmerki: 968000005601864
Litur: 3410 Jarpur/rauð- skjótt
Ræktandi: Margrét Erla Hallsdóttir
Eigandi: Illugi Guðmar Pálsson
F.: IS2001158280 Baugur frá Víðinesi 2
Ff.: IS1995135993 Hróður frá Refsstöðum
Fm.: IS1984257073 Gáta frá Hofi
M.: IS1996237332 Snörp frá Naustum
Mf.: IS1979158390 Viðar frá Viðvík
Mm.: IS1982237332 Stássa frá Naustum
FORSKOÐUNARDÓMUR
Héraðssýning á Gaddstaðaflötum
Mál (cm): 140 - 135 - 62 - 140 - 27,5 - 17,5
Hófa mál: V.fr.: 9,4 - V.a.: 8,5
Sköpulag: 8,5 - 8,5 - 7,5 - 8,0 - 9,0 - 6,0 - 8,0 - 6,0 = 8,05
Hæfileikar: 8,5 - 8,0 - 7,5 - 7,5 - 8,0 - 8,0 - 8,0 = 8,00
Aðaleinkunn: 8,02      Hægt tölt: 7,5      Hægt stökk: 7,0
Sýnandi: Steingrímur Sigurðsson

 

16.06.2011 23:07

Gróði frá Naustum kominn með kynbótadóm.

Á Síðsumarsýningunni  á Gaddstaðarflötum núna í Ágúst var Gróði frá Naustum sýndur í flokki 5.vetra stóðhesta.  Skemmst er frá því að segja að hann hlaut fyrstu verðlaun í aðaleinkunn.  Óska ég eigandanum til hamingju með klárinn.  Hér kemur dómurinn.


 IS2006137335 Gróði frá Naustum
Örmerki: 968000003933253
Litur: 3500 Jarpur/milli- einlitt
Ræktandi: Margrét Erla Hallsdóttir
Eigandi: Grétar Jóhannes Sigvaldason
F.: IS1996181791 Geisli frá Sælukoti
Ff.: IS1988188239 Gustur frá Grund
Fm.: IS1986258162 Dafna frá Hólkoti
M.: IS1996237332 Snörp frá Naustum
Mf.: IS1979158390 Viðar frá Viðvík
Mm.: IS1982237332 Stássa frá Naustum
Mál (cm): 139 - 127 - 133 - 62 - 141 - 38 - 45 - 42 - 6,4 - 29,5 - 18,0
Hófa mál: V.fr.: 8,3 - V.a.: 8,0
Sköpulag: 7,0 - 7,5 - 7,5 - 8,0 - 8,5 - 6,5 - 8,0 - 7,5 = 7,71
Hæfileikar: 8,5 - 7,0 - 8,5 - 8,0 - 8,5 - 8,0 - 8,5 = 8,19
Aðaleinkunn: 8,00
Hægt tölt: 7,5 Hægt stökk: 7,0
Sýnandi: Steingrímur Sigurðsson

  • 1
Flettingar í dag: 11
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 17
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 19021
Samtals gestir: 8158
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 08:55:38